|
Heimsóknir
Í dag: 0 Alls: 41820
|
15.03.2009 00:38:00 / viktor
Kæra blogg! Einu sinni varst þú minn fylgdarsveinn, mín dagbók, minn möguleiki að gefa öðrum í kringum mig fréttir og fá fréttir af öðrum. Ég kynntist svo FB og gleymdi þér, fyrirgefðu  Vá, það er mikið búið að gerast síðan síðast enda orðið ansi langt síðan  Fékk pabbann minn og litlu (stóru 14 ára) systkyni mín í heimsókn hér í nokkra daga! Berglind mátti því miður ekki ferðast svo hún upplifði stelpupartý og huggulegheit með öðrum fjölskyldumeðlimum í staðinn! Pabbi og tvibbarnir fengu aldeilis upplifanir og gleyma eflaust aldrei þessari ferð! Á tæpum 2 sólarhringum upplifðum við 2 heimsóknir á slysó og eina alvarlega skotárás rétt hjá heimili mínu  Viktor fór á slysó með gat á hausnum, pabbi datt niður tröppurnar hér í stigaganginum og slasaðist smá (ekkert alvarlegt samt) og svo var einn ungur strákur drepinn og 3 særðir ca. 100 m. frá okkur  Það var ótrúlega furðulegt að upplifa endalausa lögreglubíla og sjúkrabíla plús alla þessa fréttamenn sem voru hér um allt! Það var ótrúlega sorglegt að upplifa að ungur, saklaus maður missti líf sitt út af einhverju helv... stríði sem er í gangi. Já, afsakið blótið en ég er reið  Annars var endalaust huggulegt að hafa þau! Ég og pabbi áttum yndislega stund á Strikinu. Ég og Bjarndís horfðum á Mama Mia og hlógum endalaust yfir alls konar vitleysu, fréttamönnum, gleyma að borga og svo framvegis (Bjarndís veit hvað ég á við)! Ég og Indriði vorum ekki alveg jafn mikið saman því hann, Aron og Viktor náðu svo vel saman en það var samt yndislegt að hafa hann og þau öll! Annars er mitt líf eins og rennibraut, ég klifra upp og renn aftur niður endalaust! Er samt alveg að gefast upp á þessu og hangi efst á rennibrautinni í augnablikinu, er glöð og jákvæð og skal vera þar  Lillinn minn er orðinn 6 ára og byrjar í skóla í haust  Tíminn líður hratt! Unglingurinn minn verður 15 ára í sumar og notar mikinn tíma í tölvu en er næstum alltaf tilbúinn til að hjálpa mömmu sinni með hitt og þetta og er voðalega jákvæður og yndislegur í augnablikinu! Það er endalaust gaman að fylgjast með breytingunni á þeim báðum!
»
16.12.2008 22:44:32 / viktor
Ég er búin að búa á Íslandi í rúm 20 ár, ég er búin að vera milljón sinnum í heimsókn í Hveragerði (bæði fyrir og eftir flutning til Dk). Á Íslandi hef ég upplifað 3 jarðskjálfta. Einn sem ég man engan veginn eftir en Berglind segir mér endalaust að ég hafi upplifað hann, einn sem fór fram og til baka um húsið en var engan veginn jarðskjálfti í mínum augum og svo einn sem ég steinsvaf yfir og var endalaust að stríða Bjarndísi með þangað til ég las að það hefði verið jarðskjálfti  Hverjar eru þá líkurnar á að ég hrökkvi upp við jarðskjálfta í Dk??? Greinilega mjög stórar því hér í morgun flugum við Viktor bæði á fætur samtímis í hver sínu rúmi. Allt húsið hreyfðist fram og til baka, mynd á veggnum hristist endalaust og hillan í miðju herberginu dansaði salsa í smá stund  Og þvílík læti  Viktor greyið kallaði bara "Hvað er að gerast, hvaða læti eru þetta?" hann varð frekar hræddur enda ekki vanur svona jarðar breakdance  Ég rauk út í glugga til að sjá hvað hefði gerst en allt andaði frið og ró þar. Mín fyrsta hugsun (bý jú í Dk) er sú að það væru hryðjuverk eða sprengingar hér rétt hjá en ég hafði ekki heyrt neina sprengingu svo ég hugsaði strax um jarðskjálfta en það eru engir jarðskjálftar í Dk, klikkaða ég  Ég hringdi í Mikkel (því ég vissi að hann væri vakandi) og hann hélt að ég væri orðin snarklikkuð þangað til pabbi hans hringdi líka í hann og hafði upplifað það sama  Við Viktor gátum svo ekki sofnað aftur svo ég gekk hringinn í íbúðinni og færði alla hluti á sinn stað, það voru ótrúlega margir hlutir við að hrynja úr hillum (enda erum við uppi á 3. hæð) var síðast hér í kvöld að uppgötva hluti sem höfðu færst úr stað. Viktors upplifun er sú að veggirnir hristust svo mikið að allt bakið hans hristist og hann hefði dottið fram úr rúminu. Hann stökk samt meira fram úr rúminu en datt en kannski datt hann þegar hann var hálfur úr rúminu, allavega hálf sat hann á gólfinu. Frekar fyndin en samt óhugnaleg upplifun að vakna við jarðskjálfta í Danmörku  Þá veit maður það, þú getur upplifað ótrúlegstu hluti á ótrúlegustu stöðum  Be prepared
»
12.12.2008 19:26:43 / viktor
 Sæti Viktor og Sallý, það er varla til meiri ást!!! Ég þoli ekki nýju íbúðina mína  Þessa yndislegu, fallegu, björtu og hreinu íbúð.... Hún er svo fín að hvert eitt rykkorn sést, eða það sést ekki bara, það hoppar upp í andlitið á mér og segir "Ligga, ligga lái, ég er hér og þú losnar aldrei við mig og mína fjölskyldu, ha, ha, ha, ligga, ligga lái!"  Og í hvert skifti sem ég er búin að gera hreint og fínt á einum stað er Viktor búinn að sulla og drasla til eftir 2 sekúndur, hverjum langar í barn? Ég sem var svo hamingjusöm með uppþvottavélina er minna hamingjusöm núna, við náum aldrei að fylla hana almennilega upp því við eigum ekki nóg af diskum, glösum og hnífapörum  Er ekki alveg búin að venjast því að við eigum heima hérna og er enn hálfpartinn að bíða eftir að fríið endi og við förum aftur heim. Nei, ég segi svona, langar bara svo ótrúlega til að allt verði fínt hjá mér og það hefur bara ekki tekist ennþá, þetta á allt eftir að koma. ELSKA þessa íbúð, elska andrúmsloftið, útsýnið og bara allt við hana  Þarf aðeins að venjast því að ég eigi svona nágranna sem búa við hliðina á og undir mér upp á læti og svona. Ein frekar fyndin saga sem gerðist um daginn: ég var að leggja mig og hrökk upp við að það var bankað upp á hjá mér, ég hendi mér í náttslopp og opna fyrir póstinum sem situr á hnjánum og er að útfylla pappíra, við heilsumt og ég bíð endalaust eftir pakkanum mínum. Eftir LANGAN tíma lítur hann á mig og segist vera með pakka handa nágrannanum, ég bara "Ok, bæ!", loka hurðinni og fel mig undir sænginni  Var líka orðin vön tvöföldu rúmi en er bara með 90x200 núna og ef ég hrekk ekki upp við á næturnar að ég sé við að hrynja út úr rúminu hrekk ég upp við að ég skelli hausnum á mér utan í veggin þegar ég er að snúa mér og það geri ég milljón sinnum á nóttu, á eflaust eftir að fá heilahristing einn daginn  Er búin að búa til nokkrar jólaskreytingar plús að mamma gaf mér 2 svo hér er allt fullt af kertaljósum og huggulegheitum, ekkert smá kósý!!! Er búin að hitta 3 af nágrönnunum og líst mjög vel á þau, allt fólk á mínum aldri, hér eru börn á Viktors aldri plús að 3 af vinum hans búa hér rétt hjá svo hann getur sjálfur bara hlaupið yfir til þeirra. Þetta er æðislegur staður og við erum mjög happý með þetta allt saman!  Smá jólahyggerí!
»
04.12.2008 22:04:42 / viktor
...og nýtur þess í botn  Við fluttum allt á laugardag eða ég sótti reyndar síðustu hlutina í dag í gamla húsið, ætlaði að vera löngu búin að því en bakið á mér fór auðvitað í verkfall, alveg eins og ég átti von á svo ég gat hvorki gengið hér frá né sótt síðustu hlutina  Jæja, allavega er bakið að byrja eitthvað að lagast  Það var náttúrulega komin mynd á íbúðina strax daginn eftir að ég flutti en það er samt ótrúlega mikil skipulagningsvinna í kringum þetta allt saman en ég reikna með að allt verði orðið fínt um helgina  Er allavega búin að vera ótrúlega aktív í dag og á morgun koma Bjarki og Alli að sækja pappakassa og drasl sem hafa fylgt flutningunum  Það léttir mikið á mér að þurfa ekki að bera það allt niður og fara nokkrar ferðir á haugana!! Fékk ómetanlega hjálp við að flytja og samveru, takk allir fyrir það! Aron er að fara til Íslands á þriðjudag og verður fram yfir jól  Maggi er reyndar fastur í Taílandi og ekki alveg vitað hvenær hann kemur heim, átti að koma heim í gær en ástandið er ekki alveg upp á það besta þar eftir óróleikana! Aron verður þá bara með föðurfjölskyldunni og kannski eitthvað með minni familíu í Hveró, veit allavega að þau bíða spennt eftir að sjá hann! Ég elska nýju íbúðina og allt sem henni fylgir nema reyndar að synir mínir og ég erum ekki vön að hafa nágranna ofan í okkur svo við þurfum aðeins að passa okkur með læti  Ég var í reykingarstopp samtali í dag (sem ég sjálf pantaði) og hún var ótrúlega stolt af mér, eins og ég sjálf er reyndar líka. Af því að ég nú er flutt á 3. hæð þarf ég að hugsa um hverja einustu sígarettu, hef ég þörf á henni, leiðist mér, langar mig virkilega í og svo framvegis...... Og það hefur haft þær afleiðingar að t.d. í gær reykti ég bara 6 sígarettur í staðinn fyrir 15 til 20 á dag áður, þar sem þetta var ekkert mál, ég þurfti bara að fara út í garð! Vil nefna það að 2 af þessum sígarettum reykti ég hjá Bjarka og Elísu þar sem ég þurfti bara að fara út  og þar með bara 4 hér heima niðri á götu! Þetta á eftir að hjálpa mér geðveikt í að stoppa!!!!!!! Jæja, knús til allra!! P.S. Er ekki komin með net ennþá á nýja staðnum en er að stelast inn á eitthvað þráðlaust net hér í húsinu með hjálp frá nýja útleiganda mínum  Biðst bara afsökunar á að ég sé endalaust að poppa inn og út af msn og öðrum stöðum. Er alveg við það að fara að kvarta hjá þeim sem ég er að stela neti frá, "Heyrðu, fyrirgefðu, ertu ekki til í að fá betra net svo ég sé ekki alltaf að detta út  !"
»
27.11.2008 20:52:02 / viktor
Eftir 2 sólarhringa sit ég í nýju íbúðinni minni, eða sit eflaust ekki, er eflaust að setja hluti á sinn stað  Ég er búin að pakka, pakka, pakka, sortera, sortera, sortera, henda, henda, henda! Held að ég sé komin með ca. 8 svarta ruslapoka af drasli sem á að fara á haugana plús fullt af öðru sem ekki fer á haugana, ótrúlega er ég dugleg að henda  Komst svo að því í kvöld að drasl verður að vera mjög vel sorterað og í glærum ruslapokum  Ok, bara smá auka vinna  Í dag kom mamma og fékk algert kast í eldhússkápunum og þar á eftir hjálpaði hún Aroni að pakka sínu dóti. Ég endaði svo með að stoppa hana því hún má ekki nota höndina í að bera kassa en mamma er alveg jafn óþekk og ég  Hún tók Aron með heim og hann gistir þar næstu 2 nætur, Viktor er hjá Mikkel í nótt og er ég óendanlega glöð yfir því!!!! Honum finnst nefnilega allt það sem liggur neðst í kössum ótrúlega spennandi og svo er líka ótrúlega gaman að nota tómu kassana sem bíla, hindrunarbana og klifurgrind, nokkrir kassar ónýtir þar  En ég sá að búðin var búin að geyma ca. 12 kassa fyrir mig þó ég væri búin að segja að þeir þyrftu ekki að geyma meira, ég er allavega ekki í kassaþröng  Ég er búin að ná ótrúlega miklu en ég er líka búin að hálf eyðileggja bakið á mér og ég er ekki einu sinni búin að flytja og setja hluti á stað  Harka þetta samt af mér og ligg svo bara í viku eftir á  Á morgun koma mamma, Elísa og mamma hennar hingað og við ætlum að flytja fullt af kössum og drasli í nýju íbúðina svo það sé aðeins minna á laugardag þegar restin fer. Þetta verða alger fatlaðar flutningar, ég með slæmt bak, mamma og Sólveig með slæma hendi, Bjarki með skaðað hné, Alli með skaðaðann fingur og svo koma 2 sterkar persónur á laugardaginn en konan er búin að vera með tak í bakinu  Mikkel kemur kannski og hjálpar líka svo ég ætti að geta reddað nóg af sterkum strákum, annars verð ég bara að fara á djammið annað kvöld og daðra mig til flutninar hjálpar  Jæja, ætla að halda áfram að pakka!
»
21.11.2008 22:16:39 / viktor
...... með mér, jólatónlist, bjór og pappakössum  Býð upp á endalaust stuð, útrás fyrir að henda drasli, skemma drasl, opna svarta ruslapoka, lyfta, fylla í kassa, sortera og ýmislegt annað  Er ekki alveg að fatta að ég sé að fara að flytja, hlakka endalaust til en vá, eftir rétt rúma viku er ég að koma mér fyrir á nýjum stað í mínu lífi, nýrri íbúð  Er búin að senda mail til nýju útleiganda minna og reikna með að fá lykil strax í byrjun vikunnar svo ég geti mælt út glugga, veggi, skipulagt innréttingu, Bjarki getur kíkt á ljósavöntun í stofunni (mitt og Viktors herbergi). Er á fullu að pakka, sortera, vesenast á netinu í letiköstum inn á milli og hlusta á jólatónlist  Jæja, næsta törn bíður mín! Góða helgi til ykkar allra!!!!
»
18.11.2008 00:45:54 / viktor
Elsku litla Elísabet er búin að vera svo hrædd, kvíðin og þunglynd undanfarið við hugsunina um að finna ekkert húsnæði  Hún er búin að gráta mörgum tárum, eyða mörgum tímum við tölvuna og hefur oft þurft bara að slökkva á tölvunni vegna risa kvíða hnúts í maganum EN elsku litla Elísabet fann íbúð í gær  og flytur 1. desember! Ég fer úr rottuholu í höll og borga nánast sama verð, myndir af höllinni minni hér http://amagerbolig.dk/boligdetalje.asp?sagid=107P052  Ef þú ferð í galleri kemur mynd og þegar þú setur músina í hægra horn geturðu klikkað á next! Þessi íbúð er hér rétt hjá þar sem ég bý núna svo það er bara frábært!!!!!!! Hef nánast ekkert sofið síðan þetta kom upp í gær (vá, mér finnst vera vika síðan) og er endalaust að innrétta íbúðina í huganum, elda í huganum í nýja geggjaða eldhúsinu mínu, setja í uppþvottavél, já, uppþvottavél  Eldavélin er með grilli, já, innandyra grilli og djúpsteikingarpotti og ísskápurinn er með klakavél  Já, ég veit ég er klikkuð!! Eini gallinn er sá að það er bara eitt svefnherbergi en ég reikna með að Aron fái það, ég og Viktor deilum stofunni og borðstofunni verði breytt í litla stofu  Get bara ekki beðið og langar helst að flytja á morgun!!!!!!!!!!!!!!!!!!!! Elsku lillinn minn endaði hjá lækni í dag vegna eyrnaverkja  Það var sem betur fer ekki komin eyrnabólga ennþá en hún var á hraðferð í eyrað á greyjinu, það var vökvi, mikill þrýstingur og rautt eyra! Ég fékk nefdropa sem eiga að hjálpa vökvanum að komast úr eyranu! Hann sagði við mig í dag, "Mamma, mér er alltaf illt í eyranu en ég ætla að vera sterkur eins og pabbi minn og ekki segja Á!"  Þeir voru báðir í klippingu á föstudaginn hjá hárgreiðslukonunni minni sem er frá Íran og talar ekkert agalega góða dönsku! Hún dýrkar Viktor og talar endalaust við hann, hann spurði hvort hún kæmi frá öðru landi, já, hún gerði það, en þú talar dönsku! Þegar hún svo spurði hvort hún talaði góða dönsku sagði hann bara "Nei, eiginlega ekki!"  Hún hló bara og knúsaði hann á meðan ég hvarf niður í jörðina  Elsku stórinn minn er að deyja úr tilhlökkun yfir að fá sitt eigið herbergi og losna við draslið og litla bróður sinn  Hann hlakkar líka ótrúlega til að flytja í svona höll og finnst eldhúsið æðislegt, hann vill samt fá sjónvarp þangað inn Hann er svo glaður og yndislegur í augnablikinu og skemmtir sér endalaust yfir mömmu sinni sem elskar að pína hann og stríða honum!! Hann er handahitarinn minn, ég fæ alltaf að koma með köldu hendurnar mínar á bakið á honum  Elska strákana mína og líf mitt í augnablikinu!!! Það eina sem mig vantar er ró til að geta sofnað
»
09.11.2008 22:21:11 / viktor
Já, pabbi minn, þú skrifaðir í kommenti við síðustu færslu að það kæmi eflaust eitthvað upp á um helgina og þú hafðir rétt fyrir þér! Það var allsherjar innrás frá frumburðinum þínum  Ég er sem sagt á Íslandi núna, fékk hjálp frá góðu, dönsku fólki og tók ákvörðun á miðvikudegi og sólarhring síðar sat ég í vélinni á leið á klakann  Flugferðin gekk ágætlega nema bara meðfarþegar mínir, 6 danskir strákar á leið í fyllerísferð til Íslands og töluðu stanslaust um flugslys og þess háttar Ég var afar þakklát fyrir mín 3 sæti og lagðist bara endilöng og píndi mig til að sofa meirihluta ferðarinnar! Í fríhöfninni uppgötvaði ég að veskið mitt var horfið og hljóp í örvæntingu í farangursþjónustuna sem var nýbúin að fá upphringingu um að veskið mitt hefði fundist í vélinni, hjúkk, hjúkk  Pabbi var ekki viss hvenær hann væri búinn að vinna í bænum og bað mig um að hringja þegar ég væri komin á umfó sem ég og gerði og fór í mikla paník þegar ég uppgötvaði að síðan ég hafði talað við hann síðast hafði síminn hans orðið batteríslaus  Hvað átti ég að gera???? Átti ég að láta Bryndísi sækja mig og rúnta með henni þangað til pabbi yrði búinn eða átti ég að bíða og taka sénsinn á því að pabbi uppgötvaði batterýsleysið eða átti ég að taka næstu rútu í Hveró? Ég ákvað að bíða og sjá til hvað gerðist, ætlaði að fá mér að borða en fattaði svo að ég var ekki með neinn íslenskan pening svo ég settist bara í biðsalinn og sem betur fer birtist pabbinn minn korteri seinna  Við beint austur í mörg knús og kossa og umræður um tónleikana um kvöldið! Berglind var pínu stressuð en ótrúlega dugleg samt! Fórum svo á þessa frábæru tónleika á Hótel Örk þar sem húsið var algerlega fullt og fólk stóð meira að segja í andyrinu!!! Þvílíkur stuðningur og samhugur sem er hér í Hveragerði, ég gat ekki annað en tárast!! Það var reyndar ekki í eina skiftið þetta kvöld því það var bara svo margt svo fallegt, skemmtilegt og upplifun við þessa skemmtun! Pabbi minn fór reyndar alveg með mig og flest alla í salnum með ræðu sinni og tárin flutu hjá mér á meðan Hvergerðingar og annað fólk sem ég þekki ekki týndist út úr húsi og ég var að kveðja alla þessa fjölskyldumeðlimi sem voru komnir til að styrkja þau  Helgin hefur svo farið í yndislega samveru, heimsókn til frænku Berglindar á föstudeginum, mjög skemmtilegt spilakvöld hjá Söndru systur í gær (hún dró mig út úr húsi hér) og svo augnablik út á Kidda Rót á algert unglingaball  Var ekki alveg að fíla mig og komst að því að ég var næst eldsta og næst stærsta manneskja á staðnum  , eldaði sjávarréttapasta í gær fyrir Berglindi og auðvitað alla hina líka en þetta er ein af uppáhaldsréttum hennar!! Í dag fórum við í heimsókn til afa og ég frekjaðist til að ráða kvöldmatnum hér, eftir djamm hamborgara  var samt sem betur fer ekki þunn!!! Jæja, litla systir mín hún Bjarndís er að gera mig vitlausa með köllunum í mig þannig að ég verð víst að fara að hætta þessum skrifum og kitla hana smá  Knús frá klakanum og elsku mamma, innilega til hamingju með afmælið í gær!!!
»
02.11.2008 22:39:57 / viktor
Já, helgin hefur farið í leti og bull og vitleysu  Í gær fórum við Viktor reyndar í heimsókn til mömmu og Alla með æbleskiver og flórsykur í innkaupspokanum! Knúsuðum Bjarka sem var þar líka, fórum í heita pottinn, keluðum við kisumömmu og kettlinga og nutum samverunnar með mömmu og Alla!! Heim aftur, ég eldaði danskar frikadellur með kartöflum og sósu og það heppnaðist ágætlega og svo bara dúllerí!! Í dag var ég ótrúlega löt og lá endalaust uppi í rúmi að kúra mér, lesa og slaka á! Á meðan ég var að því fengu strákarnir leyfi til að leika lausum hala hér og lögðu þar með húsið í rúst  Þeir tóku allar sængur og kodda, fluttu hin og þessi húsgögn og bjuggu til helli þar sem þeir gátu legið og horft á teiknimynd í huggulegheitum  Já, það kostar sitt að vera löt móðir  Þeir fengu leyfi til að taka allt þetta inn aftur á sinn stað og svo tók ég til afganginn hér í kvöld, það var jú ekki þeim að kenna að mamman var löt í dag Ég ætlaði að elda purusteik með tilheyrandi í kvöld en nennti því svo engan veginn svo kvöldmaturinn endaði með mexíkönskum pönnukökum, súkkulaðibúning í eftirrétt og svo bökuðum við Viktor pulsuhorn! Ætlaði að hafa tacoskeljar en þegar kjötið var á pönnunni og grænmetið útskorið uppgötvaði ég að þær voru orðnar of gamlar  átti sem betur fer mexíkanskar pönnukökur svo þetta reddaðist allt saman  Ég er búin með þýðinguna og það allt saman sent af stað!! Viðkomandi var ánægð með þetta svo það var mjög gott!! Risa knús frá DK
»
29.10.2008 22:08:27 / viktor
Já, síðast þegar ég skrifaði var ég á leið á djammið eftir margar vangaveltur! Það djamm var ótrúlega skemmtilegt og ódýrt, þar sem við fengum ansi mörg glös ókeypis  Ég hef sjaldan verið jafn hneyksluð á ævinni og sjaldan hlegið jafn mikið eftir á eins og eftir þetta djamm!! Lenti á mörgum sénsum en hver annar klikkaðri  Afgangurinn af helginni var notaður í hvíld, leti og þýðingar! Á mánudagskvöldið pakkaði ég Viktori, auka fötum og tannburstum, beina leið út í bíl og heim til mömmu og Alla! Ásta, kisan þeirra var að byrja að fæða! Sólveig var þar líka og við fylgdumst spenntar með fæðingunni sem þó endaði með því að stoppa um miðja nótt svo við mamma fengum okkur lúr á meðan Sólveig fylgdist með kisunni! Um morguninn leist okkur engan veginn á þetta allt saman með greyið kisuna svo við mamma fórum til dýralæknis þar sem kom í ljós í röngten að hún var með 2 kettlinga og þeir voru allt of stórir til að hún gæti fætt þá sjálf  Greyið kisan var sett beint í keisaraskurð og úr því komu 2 risa kettlingar. Um leið og þeir voru fæddir kom einn læknirinn hlaupandi upp með þá til að sýna okkur og ca. 10 mín. seinna fengum við þá í hendurnar og þurftum að nudda og nudda þá til að halda lífi í þeim, mamma þeirra var jú enn í aðgerð! Þegar að Ásta greyið vaknaði vildi hún ekkert hafa með þá að gera og var alveg kolrugluð enda enn hálfdópuð. Hún var heldur ekki komin með neina mjólk svo það þurfti að gefa þeim mjólk úr sprautu. Þegar Ásta var svo almennilega vöknuð breyttist hún í þessa yndislegu, ábyrgðarfullu mömmu sem sleikti bæði kettlinga, okkur og Sallý (labradorinn hennar mömmu sem langaði endalaust til að verða mamma þeirra  ) Nú er hún komin með mjólk og kettlingarnir njóta lífsins með mömmu sinni  Þvílík upplifun get ég sagt ykkur!!!!! Og ég sem þykist ekki einu sinni vera dýramanneskja, ég var sú sem fylgdist mest með þeim  Annars er ég bara á fullu með að þýða og þýða og þýða! Passa mig samt á að taka pásur inn á milli því annars fer hausinn á mér í köku og ég man ekki einu sinni hvernig maður skrifar hæ á dönsku  Það eru ótrúlega mörg orð á íslensku sem maður getur ekki þýtt beint yfir á dönsku en ég er viss um að mér hafi samt tekist að koma meiningunni til skila!!! Var að komast að því að Sandra systir er með geggjaða orðabók í tölvunni sinni og varð hún mér mikil hjálp áðan þegar mig vantaði dönsku orðin fyrir laufskóg og barrskóg, þetta eru ekki beint orð sem ég nota í mínu lífi, hér í Danmörku er yfirleitt talað bara um skóga  Jæja, smá fréttir héðan!! See you later og munið að kvitta, annars fer ég í fýlu
»
24.10.2008 21:06:49 / viktor
Í gær var ég að kitla og kyssa Viktor í tætlur og fékk þar með tilkynninguna "Þú ert leiðinleg!!!!" (meira að segja á íslensku  Ég spurði hann svo hvernig stæði á að hann væri í hláturskasti og endalaust brosandi ef mamma hans væri svona leiðinleg og þá kom "'Ég er ekkert að hlægja og brosa, þú ert leiðinleg!!" Ég hló bara og sagði að það væri allt í lagi ef honum fyndist ég vera leiðinleg, manni fyndust oft mömmur sínar leiðinlegar!! Stuttu seinna heyrðist í lillanum í fanginu á mér "Mamma, þú ert ekkert leiðinleg, þú ert ótrúlega skemmtileg, ótrúlega góð mamma og ég elska þig ótrúlega mikið!!"  Þvílík ástarjátning!!!!!!!!!!! En svo sagði hann að ég gæti stundum verið leiðinleg og ég hefði verið leiðinleg þegar ég fór með bræðurna í langan, ruglingslegan bíltúr síðasta laugardag, án þess að segja þeim hvert við færum að fara!! Það fannst honum ekki skemmtilegt en ég skemmti mér konunglega  Við enduðum í keilu, eða réttara sagt, við borguðum inn, fórum í skóna og allt í einu fylltist húsið af barna- og unglingaafmælum svo við fengum öll sjokk og ég fékk endurgreitt og leiðinni var haldið á McDonalds í staðinn þar sem þeir skemmtu sér konunglega í leikhúsinu þar  Um kvöldið leigðum við okkur spólur og við Viktor hlógum endalaust yfir íkornunum sem syngja  Á sunnudag hringdum við í vin hans Viktors og buðum honum í heimsókn (þetta er sonur fyrrverandi kærustu hans Mikkels, já, henni sem skapaði endalaus vandræði í byrjun okkar sambands en við erum ágætar vinkonur í dag). Dagurinn var notaður í mikinn leik, mikinn hlátur, góðan hádegismat, spil, fótbolta (ég var ekki góð) og feluleik í nokkrum runnum! Mjög huggulegur dagur og þegar að mamma hans kom að sækja hann sat hún hér í tæpan klukkutíma að kjafta  hún sem hataði mig!! Ég er búin að fá nýtt verkefni! Á að þýða verkefni fyrir eina íslenska stelpu frá íslensku yfir í dönsku. Mjög spennandi en verður eflaust erfitt inn á milli að finna réttu orðin og svoleiðis! Danska og íslenska eru jú ótrúlega misjöfn tungumál og oft lendi ég í að hin og þessi orð finnast ekki á hinu tungumálinu!! En fer inn í þetta með opnum huga og hlakka til að takast á við þetta  En já, kannski hefur sonur minn rétt fyrir sér, kannski er ég bara leiðinleg  Er með 2 tilboð um djamm í kvöld en sit samt enn hér fyrir framan tölvuna í druslufötum (og ég meina götóttum jogginbuxum  ) og ekki einu sinni farin í sturtu  Veit ekki einu sinni hvort ég nenni að fara eitthvað út í kvöld, en veit samt að tilboðin gilda ekki annað kvöld og þar með hefur heil pabbahelgi liðið án djamms  Eins og það hafi ekki gerst milljón sinnum áður  Æ, þarf að fara að taka ákvörðun um hvað ég geri, kl. er 11 að kvöldi til hér........ Á ég að trúa syni mínum og halda að ég sé leiðinleg eða á ég að skella mér í djammfötin, skella nokkrum bjórum í mig og reyna að vera skemmtileg????????? Get ekki fundið út úr því!!! P.S. Leiðinlega Elísabet neitar að sonur hennar hafi rétt fyrir sér og er þar með hoppuð í sturtu, mála sig, gera sig sæta og hitta vinkonu sína niðri í bæ  Bara smá uppdeit
»
17.10.2008 17:35:11 / viktor
Sólveig og Elísa komu til mín á laugardagskvöldið, við borðuðum góðan mat, lögðum maska, lituðum hár, plokkuðum og lituðum augnabrýr, dúlluðum með neglurnar á okkur og drukkum bjór! Mikið kjaftað, mikið hlegið og smá hneyklast  Eftir dekurkvöld var leiðinni haldið á djammið og þar var mikið dansað! Á miðvikudag fórum við Viktor út á land að sækja Aron sem var í heimsókn hjá Christian vini sínum. Við eyddum þar deginum í góðu yfirlæti og fórum svo beint heim til mömmu og Alla í pottinn og sjónvarpsgláp! Í dag skelltum við okkur svo í BonBon land og áttum þar æðislegan dag með Davíð og Olgu Lilju (frænda Arons og kærustu hans). Við vorum svo heppin að fá 5 ókeypis miða í skemmtigarðinn og veðrið var geggjað svo allt var bara fullkomið  Nema bara að Davíð lokkaði mig í eitt tæki sem var frekar óhugnalegt en samt skemmtilegt  Akkúrat núna kraumar dýrindis matur í ofninum (innbakaðar kjúklingarbringur með beikoni), sjónvarpsþátturinn okkar Viktors byrjar eftir hálftíma og við erum öll bara svo glöð og hamingjusöm yfir að vera öll 3 saman  Jæja, er farin að búa til dressingu og klára matinn!!! Góða helgi til ykkar allra!!!!!!! P.S. Þetta er skrifað seinna um kvöldið!! Ég elska sjálfa mig, þó svo að Bjarki og Elísa elski mig kannski ekki alveg jafn mikið núna  Talvan mín var í algeru rugli hérna og ekkert virkaði almennilega hjá mér, ég var ótrúlega pirruð, reið og leið út í hana og langaði mest til að grýta henni út um gluggan  Hún var vægast sagt að gefa upp öndina  Ákvað svo að hreinsa hana algerlega með nýju vírusprógrammi og eyða fullt af prógrömmum út úr henni svo hún myndi virka betur!! Var ótrúlega dugleg með mikilli hjálp frá Bjarka (ca. 10 símtöl  ) sorry, elsku Bjarki og Elísa mín!!! Elska ykkur og takk æðislega fyrir hjálpina þó svo mér finnist ég hafa verið agalega dugleg sjálf að bjarga tölvunni í bili
»
09.10.2008 14:46:33 / viktor
Æ, hvað það var nú gaman að fá svona mörg komment á síðustu færslu  Gott að vita að þið nennið að lesa bullið í mér!!! Mikið í gangi hér á bæ, mörg mál í vinnslu, mikið stress og álag en ég lifi það af eða vona það allavega  Viktor fór í næturgistingu hjá Sólveigu og Jan í gær, búinn að bíða spenntur eftir því á meðan þau voru á Íslandi. Hann vildi mjög gjarnan fá að vera aleinn heima hjá þeim og var ekkert alltof happy þegar mér var boðið í mat og að horfa á einn sjónvarpsþátt (er ekki með þá stöð hér heima). Hann sætti sig þó við það en ég heyrði hann svo allt í einu hálf hvísla að Sólveigu "Hvenær fer hún eiginlega?"  Það er svo mikið sport að fá að vera einn í heimsókn hjá fólki!! Aron búinn að vera hjá mömmu og Alla í góðu yfirlæti, hann þurfti smá pásu frá mömmunni og litla bróður og fæst nú bara varla heim aftur  Ég tala nú samt reglulega við hann og við Viktor höfum farið af og til í heimsókn til þeirra! Gott að eiga svona ömmu og afa sem geta hjálpað manni með erfiða hluti, bara með samtölum, ást, göngutúrum og nærveru  Pabbahelgi núna en engin plön ennþá, er svolítið að bíða eftir hvort að Sólveig sé að fara að vinna og ef ekki verður kannski smá stelpu dekurkvöld hér með að leggja maska, plokka, lita og bara kjafta endalaust  Var á fundi í bankanum í dag til að breyta heimabankanum mínum, bankaráðgjafinn minn ótrúlega stolt af mér fyrir að hafa tekið svona mikið til í fjármálunum mínum  Hún er alveg yndisleg og spyr alltaf ótrúlega mikið út í hvernig mér líður og hvernig gangi hjá okkur og hún er svona manneskja sem því miður fær mann bara til að opna sig  Þegar hún heyrði allt þetta sem er í gangi hjá okkur núna sagði hún að ég mætti endilega kíkja við hjá henni af og til í kaffibolla og kjafterí  Veit ekki hvort hún er meira bankaráðgjafi, sálfræðingur eða amma  Nei, nei, það gengur ágætlega en ég er að slást við ótrúlega erfiða hluti og það tekur auðvitað sinn toll en ég er bjartsýn og veit að þetta á eftir að lagast allt saman, það kostar bara orku þangað til En eins og bankaráðgjafinn minn og margir aðrir hafa sagt við mig undanfarið, þá er ég greinilega ótrúlega sterk og dugleg
»
05.10.2008 20:13:51 / viktor
Er búin að fá nokkrar kvartanir og verð víst að fara að skrifa nýjar fréttir!!! Man voða lítið eftir vikunni því hún fór bara í bull og vitleysu  Á föstudag dúlluðum ég og Viktor mér og svo fór ég í tölvuna! Á laugardag var alger leti en seinnipartinn fórum við til mömmu og Alla í mat og í pottinn, rosa nice  fórum svo heim og lögðumst í sinn hvorn sófann að horfa á tv!! Í dag fórum við í heimsókn til Láru, Nínu og Yasmínu og þar var allt í einu rosa veisla með köku og camembertrétti, nammi, namm  Mikið étið, mikið kjaftað og mikið drukkið af Coke Zero  Takk kærlega fyrir mig!!!!!!!!!! Við Viktor komum svo hingað heim, tókum allt til, þurrkuðum af öllu, ryksuguðum og ég skúraði svo! Hann var ekkert smá duglegur drengurinn  Bara að setja barnageisladisk í gang og þá er hann í fullu stuði  Hann vildi samt endalaust bleyta tuskuna aftur og aftur og aftur, því þá virkaði hún mikið betur  Aron er hjá mömmu og Alla í smá fríi og nýtur sín endalaust þar, enda eru þar góðar manneskjur sem passa upp á hann  Á morgun ætla ég að hitta danska vinkonu mína á kaffihúsi, hef ekki verið á kaffihúsi í ár og aldir! Vikan bíður svo upp á vinnu fyrir mig hjá Alla!!! Jæja, ætla ekki að bulla endalaust í ykkur, vildi bara standa við loforð mitt um að skrifa nýja færslu og nýjar fréttir!!! P.S. Ein ótrúlega sæt saga í lokin!!!!!!!!!!!! Viktors nafn er ekki sagt á sama hátt á íslensku og dönsku! Á dönsku hljómar það meira sem Viggtor! Um daginn var ég að skrifa nafnið hans í nýju vetrarstígvélin hans (sem ég keypti í fyrra á útsölu á 35 dk kr  ) og hann spyr: "Mamma, hvað ertu að skrifa?" "'Ég er að skrifa Viktor!" segi ég á íslensku "Æ, mamma, fóstrurnar mínar hér í DK skilja ekki Íslensku svo þú verður að skrifa nafnið mitt á dönsku!!!!" Hann er svo mikið krútt
»
26.09.2008 20:37:31 / viktor
Já, ég er greinilega farin að blogga bara vikulega  Eins og vanalega breytast öll plön hjá mér svo greyið mamma og Alli misstu af gulrótarköku og sorteringu í þvottahúsi  En það er reyndar Bjarka og Elísu að kenna svo þau verða bara að kenna þeim um það  Elísa hringdi í mig á sunnudagsmorgun og sagði að við værum að fara í tívolí með börnin og ég gæti eiginlega ekki sagt nei, hún hafði rök við öllu því hún vissi alveg hvað ég myndi segja  Svo með lánaðan pening frá þeim mættum við í tívolí með börnin okkar á síðasta opnunardegi tívolís, inngangur og túrpassi kostuðu 100 dk kr. Við skemmtum okkur konunglega í byrjun þrátt fyrir skapvonsku yngsta drengsins hér á bæ  Við náðum ekki mörgum tækjum því raðirnar voru endalausar og það kom bara fleira og fleira fólk sem öll þurftu að labba á móti okkur eða rekast í okkur! En þetta var samt frábær túr og takk Elísa fyrir að bjarga öllu svo við kæmumst með  Á mánudaginn fór ég að hitta mömmu í Amager Centret og græddi þar með bæði peysu og leggings  Mamma var búin að lofa mér peysu því ég á engin föt lengur  Mamma kom svo með heim og fékk smá gulrótarkökusneið svo ég svindlaði ekki alveg á henni  Á miðvikudag fór ég í samtal við þá sem er með reykingarstopp námskeið nema bara að hún var þar ekki þennan dag og þau höfðu lagt skilaboð á símsvarann í símanr. sem ég hef ekki haft í ótrúlega mörg ár! Fékk samt mikið út úr því þar sem ég náði að tala við hjúkku og þar kom inn læknir sem gat ráðlagt mér í sambandi við lyfin og kvíðann!! Aron er búinn að vera hjá mömmu síðan á miðvikudag og verður þar líka um helgina, þar með fæ ég smá hvíld frá unglingahormónum, hann fær hvíld frá nöldri plús að hann elskar að vera þar!!!!! Nú er pabbahelgi hjá mér en engin plön framundan, veskið er ekkert að leyfa neitt stórt svo ég nota eflaust sófann, tölvuna og tv mikið um helgina  Átti að vera í rosa skemmtilegu partýi á morgun hjá Hrund þar sem m.a. var titrarakynning en fjármálin voru ekki alveg að leyfa það þar sem hún býr frekar langt í burtu, er frekar spæld  Viktor, óþekktarormur er búin að setja sér takmark og er að takast það  Hann ætlar að vaxa nokkra cm á dag og ég get svo svarið fyrir það að á hverjum degi upplifi ég að hann ekki passar í fötin sem voru nokkurn veginn í lagi daginn áður  Þar með er fatakommóðan hans að verða tóm!! Ég og Mikkel keyptum 3 buxur, 2 peysur og 3 sokka handa honum um daginn, kostaði bara 330 dk kr! Mér fannst þetta geggjað stórt í búðinni (stærð 6 til 7 ára) en ég sá það þegar hann mátaði að ég verð eiginlega að skifta þessu öllu saman! Ætla að hætta að gefa honum að borða svo hann hætti þessu vaxtarveseni  Jæja, ætla ekki að pína ykkur meira með bulli frá okkar tilveru hér en lofa samt að pína ykkur aftur seinna með fréttum
»
Síður: 1 2 3 ... 29
|
|